svona er líf mitt

12. júlí 2006 klukkan 02:09
á manni ekki að líða vel og öruggur heima hjá sér í faðmi fjölskildunar?? ég er búin að vera velta mér upp úr þessu í rúmt ár núna... því mér líður ekki þannig.. mér líður ekkert vel og ekki örugg...

og þess vegna ætla ég að auglýsa eftir íbúð... eða mig vantar íbúð sem fyrst í bgn(Borgarnesi).. ef einhver veit um eina einstaklinsíbúðí Borgarnesi máttu benda mér á hana.. í síma 8235736 eða bara í e-mali litlatikin@hotmail.com

ef fólk fer að furða sig á því að ég sé að þessu þá er aðalástæðan sú er að mamma sagði mér að fara leita mér að íbúð.. NÚNA!!!

maður á að fá að vera eins lengi og maður vill á heimili sínu... Arnór er enn hér heima...

það er varla hægt að lýsa því hvað manni líður illa að lenda í þessu.. ég veit að ég er frekja en það er óþarfi að henda manni út.. nú verða dagarnir á eftir næsta laugardag erfiðastir lífs míns því ég verð orðin 18 þá meiga þau henda mér út en samt verða þau að hjálpa manni eikkað en það er ekki séns að þau munu gera það...

bara svona erfiðleikar byrja þegar ég bið um bílinn... og má ekki fá hann í bgn... svo er bara ætlast til að ég sé að fara temja fyrir vinkonu mömmu já sénsinn.. ég er eikki einu sinni búin að fara á minn...

ég er farin að spá hvort Borgarnes sé of nálægt þessu fólki sem vill ekkert með mig hafa.. er mikið að pæla að fara bara í bæinn og aldrei láta sjá mig aftur hér á vesturlandinu... það er eikkað sem mig langar... að búa hér er búið að gera líf mitt af helvíti síðan ég kom aftur frá skaganum...

og svo er fólk að undrast á því að ég reyki... ÉG REYKI ÞVÍ MÉR LÍÐUR ILLA hvað annað!!!!

ég sem var í ágætis skapi þar til þetta byrjaði núna fyrir svona hálftíma og nú er búið að eyðileggja fyrir mér allt kvöldið

hvernig er hægt að fara svona illa með eina manneskju.. ég veit að ég er erfið en foreldrar mínir þurfa ekki að hóta henda mér út, kalla mig tík og tussu.. þarna eru þau að brjóta niður sjálfsálit mitt í þúsund mola.. ekki skrítið að ég sé að frekka ég ætlaði aldrei að byrja drekkaog hvað þá reykja...

en hér hafiði það loksins.. þið vitið allt um líf mitt núna því mér er sama mér væri sama þótt ég dæjy bara mér er sama um þessa fokking fjölskyldu því henni er greinilega sama um mig... og ekki reyna að segja að þeim sé ekki sama... ef þeim væri ekki saman um mig þá væri þau öðruvísi við mig og myndu ekki vilja losna við mig... svo er bara líf mitt og þau eiga að sætta sig við mig.. það er enginn fullkominn!!!

gegt í gær:)

09. júlí 2006 klukkan 18:07
það var heví gaman í gær sko:) eins ig margir vita voru írskir dagar og ég er á skaganum eins og fyrri færslan mín segir...

þegar Harpa vinkona kom í bæinn fór ég með henni og Sigrúnu vinkonu hennar á tjaldstæðið og hittum einhverja mr-inga... þegar marr fór að kynnast þeim og kominn í glas þá varð helvíti gaman:) kynntist þar Helgu, Árna, Tomma, Hildi og fleiru fólki...

ég og Helga fengum far með Hjalta á ballið á bimmanum hans Skúla... þegar við vorum komnar hittum við einhvern vin Helgu og spjölluðum við hann en þá þurfti Helga að fara á klósettið.. þannig að ég var þarna með einhverjum gaur... og við smigluðum okkur fremst í röðinni á miðasölunni og einhver gella keypti fyrir mig miðann.... en þá hitti ég Jón Ben, Rúnu og Teit þannig að ég fór með þeim svo inn á ballið... það átti að spurja mig um skilríki en gellan hélt að einhver maður sem stóð fyrir aftan mig væri forráðamaður minn:) hehe snild... svo vorum við bara þarna þá fann ég Helgu aftur og fór með henni inn á ballið...

en svo sá ég valda, Gumma Sigga og Elmar.. og Elmar var með einhvern gloss og var að reyna að setja á sem flestar stelpur og hann gat, en ekki mig það fékk hann ekki:þ svo rakst ég á Tóta úr árbæ, knúsaði hann og fór með gaurunum....

inni í bartjaldinu hittum við þá aftur og ég fór að spjalla við hann(Tóta) og kynntist þá Stínu, Einari(frænda Tóta) og sæunni... var svo bara með þeim restina af ballinu... það var heví gaman:) 

Við dönsuðum og dönsuðum alveg þar til ballinu lauk:s hefði mátt vera lengra:þ þá röltum við bara upp að mánabrautinni og þá fundu þau farin sín og við kvöddum og ég röllti bara heim til írisar.... eftir smá kom íris og Fjóla en þá voru lea og Marinó komin... ég fór smá að smsast við tóta... og fór svo bara að sofa.. ég vissi síðan að Eiki vinur átti að sofa uppi hjá mér.. hehe en við vorum bara tvö í rúmminu hennar írisar meðan þau voru 4 inni í herbergi Skúla.... sem er helmingi minna en írisar... jafnvel mikið minna:þ... núna eru allir vaknaðir nema orri og jónsteinar... og ég bíð bara eftir að Harpa komi til að ég geti skilað henni sléttujárninu hennar og ég fái peysuna mína.... svo veit ég ekki hvenær við leggjum af stað heim en ég fæ far með Fjólu í bgn...

jæja nú er ég búin að segja frá þessu í stuttu máli.. og þarf ekkert að segja meir...

írskirdagar

08. júlí 2006 klukkan 02:33
jæja núna eru það írskirdagar á skaganum:D:D ég fer á flakk helgi eftir helgi;þ hehe....

ég er núna á skaganum hjá írisi frænku vorum að borða og tvær gellur frá skagaströnd eru hér og ég þekkti aðra þeirra þegar ég var yngri en eiginlega ekkert núna.. en mér finnst svo auðvelt að kynnast fólki;) hehe

svo er það ball á morgun og harpa kemur:D:D hlakka gegt til að hitta hana.. frekar langt síðan ég sá hana síðast:s það er nebbla ekki nógu gott sko....

svo er marr bara að verða 18 ára næsta laugardag:D:D samt verður engin breiting get nú bara keypt síkarettur nú þegar þannig að.. en samt lögráða:)

ég er að pæla að joina gellunum öllum inn í herbergi ákvað bara að skella inn einni stuttri færslu

veik

05. júlí 2006 klukkan 04:12
þá er maður komin með landsmótsveikina:s ég fékk þetta líka eftir fjórðungsmótið... þannig að ég held barasta að ég fari ekki í vinnuna á morgun því að ég er með hálsbólgu, kvef og hósta og það ógeðslegan hóst.. og er eiginlega bara búin að missa fokking röddina... ég hljóma eins og versta reykingarmanneskja:s það er samt best að reykja með hálsbólgu eða það finnst mér;)

ég og sandra ætlum að keppa um hvor okkar getur verið lengur með bandi frá landsmótinu og það á eftir að endast lengi því að við erum báðar heví þrjóskar og þetta pirrar okkur ekkert!!!

og svo er ein spurning.... hverjir ætla á írskadaga á Akranesi???:) ég ójá:D kanski maður sleppi því að drekka... veit ekki.. en víst að íris frænka er hætt að drekka þá er ekkert víst að maður gerir það... því ég verð hjá henni:)

svo er maður bara 18 eftir 11 daga:D vááááá hehe... en það halda hvort e-ð er allir að ég sé orðin eða flestir í öllum sjoppum hér í bgn:)

ójá....

svo eru það einar fréttir.. við sandra erum að kæra einn gaur... ég ætla ekkert að nefna nafnið en sumir vita hver það er og hann veit að við erum að fara kæra hann.. við erum allavegana byrjaðar á því...:) og ég tek það framm að við erum ekki að kæra nauðgun!!!

jæja kkomið nóg í bili... hej dååå
Kolla

komin heim

03. júlí 2006 klukkan 01:10
jæja þá er maður kominn heim aftur af landsmótinu... það var helvíti gaman sko:)

Fimmtudagur:

við lögðum af stað á fimmtudagskvöldinu frá bgn um hálf 10 og ég keyrði meðan hinir í bílnum drukku... við komum eitthvað um 2 og hálfum tíma seinna á áfanga stað og þá er ég að meina að þetta tók um 2 og hálfan tíma að keyra þetta... fórum og fundum jón ben og tjölduðum hjá honum og ég tók upp breezer... hittum Sögu stelpu sem Sandra þekkir.. skelltum okkur svo á geirmundar ball.. en við saga fórum niður á tjaldsvæði til að sína helga hvar við tjölduðum... svo komu allir niður og við höfðum það bara assgoti gaman:):D

Föstudagur:

morguninn eftir vaknaði ég um 9 8-O sem er frekar snemmt en þá fórum við sandra og fengum okkur að borða.. fórum svo í sund... ég, þráinn, sandra, Doddi og saga á suðakróki og fengum okkur svo að borða og Doddi splæsti pízzu:)

komum svo aftur á vindheimamela og svo kynntumst við Saga Gaurum frá árbænum.. Tóta, Svenna, Dörty(Hjörtur) og svo einhcverjum fleirum sem ég man ekki hvað hétu.. talaði heldur ekkert mikið við þá... eða svo var einn sem hét snorri en hann var asskoti feiminn:p við saga vorum bara eikkað með þeim eiginlega allt kvöldið og saga fór að reyna við tóta... og já hann er SÆTUR þeir voru allor á aldri við mig eða einu ári yngri...

þetta ball var ekkert sérstakt einhver hljómsveitsem ég man ekki hvað heitir...

sofa

Laugardagur:

vöknuðum um 11 við sandra og fórum upp á svæði og fengum okkur að borða.. sátum í brekkunni í slatta langan tíma en á þessum degi kom rigningin sem var spáð alla helgina en hún var ekki lengi... svo fórum við sandra og keyptum okkur kúreka hatta gegt flotta sko:) og röltum svo niður í tjald... hún skifti um föt og ég málaði hana því hún var ekki með neitt spegil... fórum svo aftur uppeftir því það var papa ball:D:D og það var heví gaman:) en ég fór samt ekkert seint að sofa...

Sunnudagur:

vöknuðum svo í dag og tókum okkur saman og lögðum af stað og stoppuðum í blöndósi til að fá okkur að borða og Þráinn splæsti og okkur Söndru, Dodda og mig:)

svo stoppuðum við hjá brú því þráinn var orðinn smá þreittur og varð að fá að standa upp og kaupa sér eikkað að drekka... svo veit ég ekki afhverju en við stopuðum líka hjá Dýrastöðum og þá sá ég tóta og þá koma frammhjá þannig að við fórum af stað og veifuðum þegar við tókum framm úr þeim og eftir það voru þeir fyrir aftan okkur alla leiðina að hyrnunni og þá fékk ég sms frá tóta..."voru það þið sem voruð fyrir framan okkur áðan" og þegar ég ætlaði að fara að svara honum  kom hann að mér... hehe...

jæja... ég er búin að segja ykkur frá helginni í stuttu máli

well well

29. júní 2006 klukkan 17:49
jæja mins er að fara á landsmót á eftir eða í kvöld.. þráinn sækir mig um átta eða níu... og þá bíðum við eftir Söndru því hún er búin níu en kanski fyrr ef hún má:) og þá leggjum við í hann:) ég á víst að keyra en við förum á þráins bíl...

við sandra erum búnar að byrgða okkur upp fyrir ferðina:D

það verður sko heví gaman hjá okkur:d hlakkar ekkert smá til að verða búin að vinna í dag... en núna er klukkan um tíumínotur í eitt... og ég er búin fimm:þ

en svo komu slæmu fréttirnar... :s benzinn er bilaður.. bremsuvökvinn lekur bara beint í gegn svo að það er ekki hægt að bremsa:s ekki gott sko.. pabbi keyrði mér bara í vinnuna og afi sækir mig um fimm:þ

mamma er fyrir norðan með krakkana...svo að það eru bara ég og pabbi heima svo að núna er ég að setja í þvottavélina, þurkarann, brjóta saman þvott og sjá um uppþvottavélina... og er að pæla að ryksuga þegar ég kem heim:þ gegt dugleg er það ekki;Þ hehe

ég hef ekkert komist á bak.. því það þarf einhver að koma með mér þegar ég fer á týfara því að ég er ekkert búin að fara á hann síðan hann kom inn, en Sigrún er ný búin að koma úr hálskýrtla töku.. svo að hún kemst ekki með mér:s

jæja ég ætla að halda áfram að vinna svo bæbæ

veik

18. júní 2006 klukkan 19:25
maður er eiginlega bara hættu næstum að bloggar... það gengur bara ekki:s tsss
En ég er búin að vera eiginlega veik... með geðveikan hósta og kvef.. og frekar slöpp... bara hanga heima eiginlega... fór smá í Bgn í gær en ekki lengi

en ég er bara að vinna á fullu alla virka daga frá 8 til 17 og þegar ég kem heim er ég eikkað svo þreitt að ég fer bara strax að sofa liggur við...

en ég hætti við að far á Akureyri því Sandra mátti ekki fara.. er frekar fegin víst ég er veik.. en langar samt svolitið að fara... eiginlega allir vinir mínir eru þar.. Hjalti, Ásgeir, Íris, Steff, Skúli og svo er Arnór bróðir þar og 9 vinir hans þau fóru öll saman... og svo bara fullt af fólki sem ég þekki..

en ég ætla að fara til eyja um verslunnarmanna helgina.. það getur enginn bannað mér það:p hehe... ég verð orðin 18 ára þá:D

svo er ættarmót í júlí, helgina 14, 15 og 16 og ég á afmæli 15:D það verður fjör.. sérstaklega ef ég fer á hestbaki þangað þá tek ég Írisi á bak:)

mamma er núna ekkert smá ýtin að ég fari í meirapróf.. ég er mikið að pæla í því.. ég held að það sé gegt gaman og maður græðir alveg slatta af því:D svo fer maður kanski í bifvélavirkjun:) það er aldrei að vita sko;p hehe...

ég er samt að pæla að leggjast aftur upp í rúmm og horfa á dvd þar til sigrún keur heim úr bænum og þá ætla eg að draga hana á hestbak:) það er svo geðveikt veur núna:)

svo er mamma að fara norður til Þóru frænku eftir rúma viku eða svo og tekur litlu sistkyni mín með.. þannig að það verður bara ég og pabbi hér heima.. bara smá rólegheit...

vá það er minni en mánuður í afmælið mitt:D það er samt ekki mikil breiting því að ég get keypt sígó þegar ég vil... það eru nebbla ljóskur sem vinna í einni sjoppunni í Borgarnesi hehe.. snild:)

svo er magga að fara koma hingað á Hvanneyri.. ég skal ná að draga hana á hestbak.. hún er svo hrædd eftir að hún datt af baki:s

jæja ég nenni ekki að bloga meira.. bæbæ

hæhæ

17. júní 2006 klukkan 22:38
ég er byrjuð með síðuna aftur.. hún er skemmtilegri og flottari...

hæhæ

23. maí 2006 klukkan 01:37
hæhæ ég er komin með nýja síðu með Kíkí minni:) og ef þið viljið vita síðuna verðiði að setja inn ykkar síðu og kanski ég fari bara inn á hana og segi ykkur það eða bara bjallið við mig;)

Auglýsing

Leit

Könnun

hvaða bíll????

Leikur dagsins